Home Back E-mail


Að grafa lax

Engin ástæða til að syrgja, hann smakkast betur grafinn!

Maður velur trúverðuga fiskbás á hollenskum útimarkaði og síðan gott stykki af laxi, t.d. 1 kg. Láttu sölumanninn ekki roðfletta fiskinn. Hinn efnahagslegi skaði er takmarkaður við um það bil 20 gyllini. Þar næst tekur maður beittan eldhúshníf, oh ja, við erum ekki lengur á útimarkaðinum heldur við eldhúsborðið. Næst 5 matskeiðar af fínu sjósalti, 3 matskeiðar af svörtum pipar (best ef hann er ekki malaður, þá er auðveldara að þrífa eftirá), 4 matskeiðar af sykri, poki af dilli, heimilisplast.


Leggið flökin á plastið þannig að rauðu hliðin snúi upp. Blandið saltið, piparinn og sykurinn og stráið yfir hræið og líka hliðarnar. Setjið dill (ekki allt, geymið eitthvað þangað til fiskurinn er borinn á borðið og skerið það smátt) á fiskinn og á hliðarnar. Leggið flökin saman þannig að rauðu hliðarnar snúi að hvor annarri, pakkið þeim vel inní plastið og leggið í skál. Leggist ofaná eða látið eitthvað þungt yfir t.d. ofnskál úr gleri með fernu af appelsínusafa og látið marinerast í 48 klukkustundir í ísskáp. Grafin lík geymast lengi í kulda. Snúið pakkanum með laxinum eða ísskápnum reglulega. Leitið að laxinum í ísskápnum undir þér eða í glerskálinni (sjá hér að ofan). Takið burt stóra kryddflekki og stráið hökkuðu dilli yfir og grípið til eldhúshnífsins. Nú vantar bara sósuna. Kaupið 3 hluta af frönsku Marne-sinnep og 2 hluta af fljótandi hunangi eða í nokkurn veginn þessum hlutföllum og prófið í litlum skömmtum. Heildin á að hafa milt bragð til að yfirgnæfa ekki bragðið af laxinum. Kaupið bragðlaust kex, rjómasmjör og hvítvín. Skerið laxinn (ekki gestina) í bita.

Verði ykkur að góðu!

Yfirkokkur: Oppih Visser
Aðstoð veitti: Anna-Marie Schriel
Þýðing: Eyþór Eðvarðsson


Heim Til baka Efst

© 1997...